Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkefnið Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður eftirlitsmyndavélakerfis.
- Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á EES svæðinu.
- Verkefnið felst í útvegun á eftirlitsmyndavélum og uppsetningu þeirra ásamt tengingu, stillingu sjónarhorna og prófunum á virkni vélanna, í nýrri farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka í Reykjavík.
- Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Faxaflóahafna á vefslóðinni https://faxafloahafnir.ajoursystem.net/ frá og með föstudeginum 31. október 2025 kl.10:00.
- Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Faxaflóahafna eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 2025, kl. 14:00.

