Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkefnið Farþegamiðstöð Skarfabakka – Jaðarbúnaður aðgangs- og innbrotaviðvörunarkerfis
- Um er að ræða almennt opið útboð sem auglýst er á EES svæðinu.
- Verkið felst í útvegun á jaðarbúnaði aðgangskerfis og innbrotaviðvörunarkerfis ásamt uppsetningu, tengingu og prófunum á virkni búnaðarins, í nýrri farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka í Reykjavík
- Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Faxaflóahafna á vefslóðinni https://faxafloahafnir.ajoursystem.net/ frá og með föstudeginum 31. október 2025 kl.10:00.
- Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Faxaflóahafna eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 2025, kl. 15:00.

