Með sjálfsafgreiðslustöðvum á Austurbakka, Gömlu höfninni í Reykjavík, getum við veitt viðskiptavinum okkar aðgang að skilvirku afgreiðslukerfi fyrir rafmagn og vatn alla daga ársins, hvenær sem er sólahringsins. Þjónustuna má panta og stjórna í gegnum snjallforrit í símanum.

Faxaflóahafnir stefna að því að þessar sjálfafgreiðslustöðvar leysi smátt og smátt af hólmi það fyrirkomulag sem verið hefur við rafmagns- og vatnsafgreiðslu. Þessi þróun eykur ekki aðeins þægindi viðskiptavina okkar heldur bætir einnig skilvirkni, og mætir kröfum markaðarins um skilvirka miðlun á umhverfisspori vörunnar alla leið til neytenda.

Snjallvæðing á vatns- og rafmagnsafgreiðslu á Austurbakka í Gömlu höfninni í Reykjavík, sem við tilkynntum um í fyrra, er unnin í samstarfi við danska fyrirtækið Vikingegaarden A/S. Í nýlegri samantekt fyrirtækisins um verkefnið (Case Studay Reykjavik) er farið yfir áskoranirnar sem því fylgdu, lausnirnar og hvernig til tókst.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá Jóhann Björn Jóhannsson, verkefnastjóra hjá Faxaflóahöfnum, prófa eina af afgreiðslustövðunum á Austurbakka.

 

Tenging Íslands við umheiminn

Hlutverk Faxaflóahafna er að reka öruggar, grænar og skil­virkar hafnir. Við tengjum stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin – og erum í vegverð að þróa snjallar hafnir framtíðarinnar.

 

FaxaportsFaxaports linkedin